Total Cosmo
29.02.2008 17:22:18 / girlypop

...

Jæja vinir og vandamenn. Það er komið að því. Síðasti mánuður Holunnar áður en leigusamningur rennur út. Margt hefur gerst á þessum mánuðum sem félagsmiðstöðin hefur verið opin. Góðar minningar og nokkrar slæmar. Málið með vextina er það að núna hafa allir meðleigendur ákveðið að flýja áður en samningur rennur út og sit ég einn uppi með heila húsaleigu í einn mánuð. 

Til þeirra sem eyða mörgum klukkustundum hér á mánuði, og þeirra sem sitja áttu samninginn hef ég ákveðið að opna lítinn sjóð. Sjóð til húsaleigu út mánuðinn. Ef þið hafið það í ykkur að aðstoða mig um smá aur í skiptum við þak undir athafnir og afþreyingar ykkar þá væri það mjög vel þegið.

Kt. 270687-2109
Reiknr. 0130-26-020443

Kv.Arnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 00:53:33 / cosmo kid

Ég er orðinn brjálaður. Komiði hlutum í hausinn á ykkur helvítis Íslendingar

Jæja, ég veit það er langt síðan ég hef bloggað en það sem hefur verið að brenna á hjarta mínu eykur bara mína innri reiði og þó ég geti ekki kallast pólitískur á neinu sviði verð ég að losa mig við reiðina og pirringinn og fá að segja mitt.

Nú hafa verið haldin mótmæli á einhverjum fundi nokkurra stjórnmálamanna um eitthvað borgarstjórastúss ekki satt? Hvað eru mótmæli? Jú, það er þegar almenningur mótmælir stjórn þjóðarinnar eða einhverjum atferlum þeirra. Almenningur er að nota lýðræði sitt. Já, við búum við lýðræði, samt virðist alltaf verið traðkað á því og yfir þjóðina. Af hverju, spyr ég núna, af hverju gera Íslendingar aldrei neitt? Þeir standa aldrei upp þegar spilltir stjórnmálamenn nota vald sitt til að styrkja sig fjárhagslega eða ræna almenning eða komast í enn æðri völd eða vinum sínum í völd eða god knows what. Hvers vegna eru allir svona hissa á þessum mótmælum núna? Það er vegna þess að slíkt gerist bara of sjaldan hérna. Og að heyra í þessu fullorðna fólki segja eftirfarandi:

1. ,,Þetta eru bara skríðslæti (ég kann nú ekki einu sinni að stafa það orð;)"

2. ,,Mitt barn er allavega ekki hér, það hagar sér ekki svona"

Okey, það brennur á vörum mínum að svara þessu ágæta fólki.

Herra 1. Þetta voru mótmæli, ekki skríðslæti (?). Mótmæli eru svona og þú ert bara svo óheppinn að hafa aldrei séð þau vegna þess að þú ert svo mikill væskill og hefur alla þína æfi látið vaða yfir þig og þína og þína peninga.

Kæra nr. 2. Þitt barn? Ég veit ekki með þig, en hefði ég átt barn í þessum hópi væri ég stoltasti pabbi í heimi. Að eiga barn sem stendur upp fyrir lýðræði landans og mótmælir einvherjum hálfvitum sem ráða öllu.

Og annað til. Ef þetta hefðu verið fullorðnir í þessum mótmælum hefði þetta ekki orðið eins mikið mál. Vegna þess að þetta var ungt fólk, var farið með þetta svona því allir halda að ungt fólk hafi ekkert til málanna að leggja og viti ekkert í sinn haus. Ég skal segja ykkur það kæra fullorðna, þroskaða fólk. Í mínum vinahópi kemur oftar en ekki upp umræpa um pólitík og heldur sú umræða áfram í marga klukkutíma. En allt endar það eins og hjá öllum Íslendingum...umræðan gleymist daginn eftir. Íslendingar masa og þrasa og vorkenna sér og tala um hvað allir eru spilltir og vitlausir og gleyma svo öllu daginn eftir. Af hverju haldiði að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að vera við völd svona lengi.

Okey, mitt heilaga álit á öllum stjórnvöldum.....þau eru öll spillt. Þetta er eins og fótbolti er orðinn í dag, lið vinna fyrir tilstilli múta og peningavalds. Því meiri peningur, því meiri líkur á vinningi. Ég ætlaði að skrifa miklu meira en ég enda þetta á einni setningu sem þið skuluð muna og varðveita......

"Men with power, seek to use that power"


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 20:03:15 / girlypop

Gantonismi

 

Textinn hér að neðan er ritaður er ég sat við tölvuna að drykkju. Hann í raun þýðir ekki neitt og skilst takmarkað. Ákvað samt að sýna ykkur örlítið inn í hugarheim minn þegar ég er ölvaður...

 

Ég er fullur og heimskur. Ég er haltur og leiðinlegur. Ég dett á þig ef þú færir þig ekki. Það sem mig vantar er rúm, það sem ég sækist eftir er ekki rúm, haltrandi maðurinn ég, sækist ekki eftir hækjum, handriði, hjólastól, slagsmálum né neinu öðru sem þú, lesandi góður, getur mögulega skotið á. Ég sækist eftir enn meira af áfengi, ég er týbískur og get ekki hætt. Ég stoppa ekki heilann fyrr en heilinn stoppar mig. Heilinn á mér getur látið mig hætta við hina og þessa hluti og þar á meðal mig. Vill heilinn kannski ekki bara eitthvað meðal á mig? Heilinn ræður mér og ég ræð yfir eigin heila, vandamálið er það að ég get dáleitt hann af ýmsum efnum sem gera það að verkum að hjarta mitt heldur mér ekki áfram heldur heili minn. Ég á að sofa en heilinn minn segir berskjaldaðu nei. Heilinn á að stjórna mér! Og heilinn gerir ekki góða hluti þá!

Versta er það að heilinn er agnarsmátt líffæri miðað við jafnvel of stóran búk sem gerir það að verkum að hann þykist eiga heiminn, stjórna öllu, ráða við alla og sækist í alla. Heilinn stjórnar því að helmingur þessara hluta er framkvæmdur undir völum dáleiðslu. Hann nær jafnvægi.

Við heili minn höfum aldrei neitt að segja við hvorn annan, en samt erum við eins sammála og óssamála og tveggja daga gamall heili og fullvaxinn hundur. Það sem ég hef á milli mótmælanda míns, heilans, er munnur minn sem er í 7cm fjarðlægð frá honum. þessi fjarðlægð er ekki nálægt því að vera bilið á milli Bandaríkjanna og Íraks í ósætti, ekki heldur bilið á milli græðgi og gróða og þetta er heldur ekki bilið milli hatur og ástar. Þetta er bilið á milli GANTONISMA. Það bil er ekki til.

 

ARNAR


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 23:51:51 / girlypop

Týpískt Blogg ala ARINAR

Jæja er komin bloggtíð?

Status á mér er sá að mér líður ágætlega í minni nýju vinnu á BSÍ og held Holunni hreinni og fínni enn þann dag í dag.

Grétar, eigandinn af Holunni hringdi í mig og sagði að ég þyrfti að hypja mig út 1.september eins og ég vissi eftir áralanga dvöl en stuttu síðar hringdi hann aftur og bauð mér að vera í hálft ár í viðbót. Hann er nefninlega að fara að selja húsið sem mér líkar lítt. Vonandi get ég verið hér í 8 mánuði í viðbót. (ég er ekki heimskur og veit að það eru 6 mánuðir í hálfu ári, ég er að tala um frá fyrsta semtember, hálfviti)

Dagur er kominn að leigja með mér og er það mögulega það besta sem komið hefur fyrir Holuna. Hann er duglegasti karlmaður í heimi við þrífingar. Hann kom einnig með nýja barnið okkar hann Nemó sem er norskur skógarköttur og að öllum líkindum 5% massaðri en Siggi litli. Versta er að hann hoppaði útum glugga á fyrsta degi og hefur ekkert látið sjá sig síðan. Við erum að íhuga að auglýsa hann á mjólkur-fernunum.

Jæja sæta fólk, BLELLUÐ!


GIRLYPOP

Demit, það flaug fluga í nefið á mér

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 16:52:59 / cosmo kid

PARTY TIME

MOTHERFUCKERS PARTY Í

 

HOLUNNI ALLA HELGINA! HELL

 

YEAH! ALLIR AÐ MÆTA!

 

FÖSTUDAG EÐA LAUGARDAG

 

EÐA BARA BÆÐI!!!!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 19:28:23 / cosmo kid

Dem itt

Hvað er að ykkur vonlausa fólk, af hverju er alltaf einhverjar 30 heimsóknir á dag hérna? Það hefur ekkert bæst við í 6,7 ár. En fyrst það er svona mikil ,,virkni” hérna, ákvað ég bara að blogga. Hef ekkert skárra við tímann að gera. Kannski maður virkji þetta bara aftur, klári Emmanuel og svona.

Ég er að vinna á leikskóla núna, Marbakka á Marbakkabraut í Kópavogi mánudaga og föstudaga (minnkaði við mig) og er ég sem sagt að vinna með börn á þeim ágæta vinnustað. Allt í fínasta, skemmtilegt starfsfólk og þetta er svona týpískur staður sem maður getur ekki hætt á. Ég þarf allavega að finna mér eitthvað annað á milli og ef einhver vill bjóða mér vinnu þá má segja mér af því (ég er t.d mjög góður að drekka ef það er jákvæður eiginleiki).

Það er sem sagt miðvikudagur í dag og er ég að fara niðrí Holu til Arnars að drekka Carlsberg og gin og tónik. Síðan verður skundað á Lödu Sport tónleika á Dillon til heiðurs félögum okkar í þeirri ágætu hljómsveit (æ við eigum svona hljómsveitavini). Mæli ég eindregið með nýútgefnum disk þeirra vina.

Ég mæli líka með fylleríi með mér og fleirum, það endar yfirleitt sem bestu fyllerí í heimi.

Ég ætla koma á fót nýju fyrirtæki sem skiptist í tvennt. Það er PKA og PKAA. Pizza King Anonymous og Pizza King and Alchaholic Anonymous. Ég verð fyrsti meðlimur í PKAA. Bæjó. 

Kv. Cosmo Kid, aka St. Siggi Trust


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 19:38:20 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

LOKAPARTUR!

Partur 10

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9

...Jólasveinninn og Tumi fylgja litlu gulu mönnunum upp á þriðju hæð. Þeir eru samankomnir í stóran eitthverskonar samkomusal.

,,Herra! Jólasveinninn!” heyrist í kunnuglegri rödd.

Jólasveinninn snýr sér við.
Getur það verið? Enginn annar en Rúdólf, hreindýrið Rúdólf stendur á bak við þetta allt saman.

,,Rúdólf?” spyr jólasveinninn agndofa.
,,Já herra. Þetta er ég” segir Rúdólf.
,,Af hverju? Stendur þú á bak við þetta allt saman?” spyr jólasveinninn.
,,Ég stend á bak við þetta allt saman. Ég er Meme.” segir Rúdólf.
,,Af hverju?” spyr jólasveinninn aftur.
,,Af hverju?! Af hverju! Ég skal segja þér af hverju. Það er útaf því að ég vill ekki lengur vera eitthver þræll sem flýgur um. Ég hef aldrei elskað jólin og ég vill leggja
þau niður.” svarar Rúdólf.
,,ég bjó til falsaðan undirskriftalista og lét í póstkassann þegar þú varst sofandi. Ég fann engan miða og því varð ég að skrifa á kalkípappír. Svo þegar þú ákvaðst að fara að kanna þetta nánar lenti ég í veseni.
Fyrr um morgunninn hafði ég fengið hin hreindýrin til að fljúga í átt að kastalanum mínum. Þegar við vorum hjá honum ákvað ég að láta viftuna í gang á þakinu og sleðinn fauk og hrapaði. Ég þóttist deyja en um leið og þið lituð undan hljóp ég í átt að kastalanum og fór upp í farartækið mitt og skaut snjóboltum í átt að þér.
Ég hélt þú værir dáinn og jólin væru mín. En til að toppa þetta henti ég út lítilli kistu með skilaboðum.” Heldur Rúdólf áfram.

Jólasveinninn og Tumi standa agndofa á gólfinu og trúa ekki sínum eigin eyrum.

,,Drepið þá!” öskrar Rúdólf til litlu gulu kallanna.

Mörg hundruð litlir gulir kallar hlaupa í átt að jólasveinunum og Tuma. Þessir kallar eru ekki sterkir og þurfa ekki mikið til að deyja en samt er Tumi í basli við að slást við þá.
Tíu mínútur líða og litlu gulu karlarnir fara fækkandi. Rúdólf situr í hásæti og fylgist með. Jólasveinninn fær högg í sig af einum litlum gulum kalli og vankast og verður ringlaður. Hann jafnar sig nú fljótt.
Brátt er búið að drepa alla gulu kallana.

,,Jæja Rúdólf. Þá er það ég og þú!” segir jólasveinninn ákveðinn.
,,Ég og þú?! það hefur aldrei verið neitt sem heitir ég og þú” svarar Rúdólf.
,,Jú, reyndar” segir Tumi ,,Ef það væri ég og jólasveinninn og ég og jólasveinninn værum að...nei bídd aðeins. Ef það væri jólasveinninn og þú og...nei...eh...nei okey haldið þið bara áfram” tautar Tumi.
,,Já, og þegiðu písl!” segir Rúdólf við Tuma.
,,Hann kallaði mig písl” tautar Tumi áfram.
,,Bríng it on pússí!” segir Rúdólf við jólasveininn.

Jólasveinninn og Rúdólf hefja ein alblóðugustu slagsmál sem sögur fara af frá Norðurpólnum. Rúdólf nær nokkrum góðum höggum á jólasveininn og jólasveinninn er ekkert síðri.
Maður getur séð hversu reiður Rúdólf er orðinn. Rúdólf er að verða brjálaður því hann sér að hann er að tapa fyrir sjálfum jólasveininum. Brátt snýr Rúdólf sér við og hleypur að hásætinu og nær í byssu. Hann hleður byssuna og bank!

Skotið skýst úr byssunni á ógnarhraða. Maður sér hvernig andlitið á jólasveininum breytist þegar hvellurinn dynur yfir. Allt gerist svo hægt.

,,Neiiiii!!” heyrist öskrað.

Jólasveinninn stendur stjarfur og augun beinast á byssukúluna sem færist nær og nær.
Brátt er byssukúlan komin í meters fjarlægð frá jólasveininum. Þá kemur maður fljúgandi í loftinu og fær kúluna í sig og dettur niður.
Jólasveinninn tekur inn andann. Hann er enn stjarfur en hann fer á gólfið og snýr manneskjunni sem fékk kúluna í sig.

,,Jesú!” segir jólasveinninn um leið og hann sér manneskjuna.

Bill, ofvirki krakkinn og allir hinir eru komnir til að bjarga jólasveininum.
Bill rotar Rúdólf með ferðatölvunni sinni.

,,Herra...ég sagði áðan að...euh...enginn mundi deyja...well ég laug” stynur Jesú rétt áður en hann lokar augunum í síðasta skipti.


Vegleg jarðarför er haldin fyrir Jesú og Rúdólf er sendur beinustu leiðina til helvítis.

Tumi og Jólasveinninn fengu smá kvef en það allt reddaðist.

Jólin gengu í garð og ofvirki krakkinn jafnaði sig fljótt en fékk nú samt rídalín í skóinn frá jólasveininum. Bill fékk nýja ferðatölvu og Brooklyn sonur Beckhams fékk glæsilegan Ferrari.

Aldrei var aftur reynt að taka starf jólasveinsins í burtu.

Þessi saga var skrifuð til minningar um hreindýrin sem dóu þegar sleði jólasveinsins hrapaði til jarðar.

Hvað var í kistunni sem farartækið henti niður???

Endir

Gleðileg jól allir!

Jæja, hvernig fannst ykkur?


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 20:03:51 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 9

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8

…Jólasveinninn og Tumi ná í NMT-símann og pakkann sem er á syllunni.
Þeir nota kaðal úr belti jólasveinsins til að ná í pakkann. Svo opna þeir pakkann.

,,Hvað er þetta?” spyr Tumi.
,,Ég veit það ekki. En ég kannast við þetta” svarar jólasveinninn.
,,Hvað gæti þetta hugsanlega verið?” spyr Tumi aftur á meðan hann tekur hlutinn upp.

Hluturinn er lítil kista sem er skreytt með gulli hringinn í kring. Kistan er svo lítil að jólasveinninn kemur henni í vasann sinn.
Þeir ætla að labba og reyna að finna eitthverja byggingu eða eitthvað. Þeim er nú báðum orðið kalt. Þeir þurfa að sveigja fram hjá sprungum þar sem faratækið eyðilagði stóran hluta af jöklinum.

,,Ég veit hvað er í kistunni!” öskrar Tumi allt í einu.
,,Nú hvað?” spyr jólasveinninn forvitinn.
,,Jólin!” segir Tumi.
,,Jólin?” spyr jólasveinninn.
,,Já, jólin. Eins og í jóladagatalinu með Pú og Pa”
,,Það gæti verði rétt hjá þér. Opnum kistuna” segir jólasveinninn.
,,Nei! Ertu brjálaður maður. Við megum ekki opna kistuna fyrr en á jólunum.
Núna er bara 11 desember. Jólin eru bara eftir smá tíma” segir Tumi.
,,Það er rétt hjá þér” segir jólasveinninn.

Þeir koma að mölbrotna jólasleðanum. Öllum dauðu hreindýrunum. En það er eitthvað sem var þarna en er ekki lengur.

,,Hvað vantar hérna?” spyr jólasveinninn.
,,Ekki hugsa of mikið um þetta. Líttu undan” segir Tumi.

Þeir labba og koma brátt að byggingu. Stórum kastala. Fyrir utan kastalann er faratækið sem skaut snjóboltunum. Faratækið sem er með tvö strik á stélinu.
Ofan á kastalanum er risa, risa, risa stór vifta.

,,Hvað kastali er þetta Tumi” spyr jólasveinninn Tuma.
,,Ég hef ekki grænan guðmund” svarar Tumi.
,,Það er eitt sem við getum gert í því. Það er að fara inn og gá” segir jólasveinninn.
,,Heldurðu að það sé ráðlegt?” spyr Tumi jólasveininn.
,,Nú við verðum að gá hver stendur á bak við þetta allt.

Þeir tveir labba inn í kastalann. Allt er fullt af litlum gulum köllum.

,,Þetta eru sömu kallarnir og voru niðri í jöklinum” hvíslar Tumi.
,,Heldurðu að ég sjái það ekki maður” segir jólasveinninn.
Þeir labba um og sjá allskonar myndir af jólasveininum. Slæmar myndir sem sýna jólasveininn dauðan.

,,Af hverju taka þeir þig ekki fastan” spyr Tumi.
,,Ég hef ekki hugmynd” svarar jólasveinninn.

Hátalarakerfi: ,,Allir menn upp á þriðju hæð strax!”
,,Hvaðan kannast ég við þessa rödd?” segir jólasveinninn lágt.

Jólasveinninn og Tumi fylgja litlu gulu mönnunum upp á þriðju hæð. Þeir eru samankomnir í stóran eitthverskonar samkomusal.

,,Herra! Jólasveinninn!” heyrist í kunnuglegri rödd.

Jólasveinninn snýr sér við…

Hver er þessi kunnulega rödd?
Hvenær komast þeir á slóðir Memear?
Hvað er í kistunni?

Fylgist með í næsta og jafnframt síðasta parti sögunnar....


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 22:57:23 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 8

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7

...,,Héðan getum við gert hvað sem er. Ef ég ýti á enter þá gerist eitthvað” segir Bill.
,,Ýttu!” segir jólasveinninn spenntur.

Bill ýtir. Jólasveinninn, Jesú, Bill, ofvirki krakkinn og allir hinir sem voru í tómarúminu ferðast nú á hraða ljóssins í gegn um tímagöng og hrapa niður á jökulinn. Þeir hrapa niður á norðurpólinn.
Nokkrir lenda svo illa að þeir deyja.

,,Hér deyr enginn” segir Jesú á meðan hann lífgar alla við.

Jólasveinninn og allt hitt liðið labba um í smá stund á pólnum.

,,Hvar erum við?” spyr jólasveininn ,,og hvað er klukkan?”
,,Hún er 15:25” svara Bill.
,,Hvaða dagur er?” spyr jólasveinninn.
,,11 desember” svarar Bill.
,,Getur það verið? Ég lagði af stað frá kastalanum mínum fyrir 15 mínútum með Tuma samkvæmt þinni klukku” segir jólasveinninn undrandi.

Brátt koma þeir að svolitlu ótrúlegu. Þeir labba að gleri og komast ekki lengra. Jólasveinninn lítur í gegn um glerið. Það sem er fyrir aftan glerið er ótrúlegt.
Jólasveinninn og Tumi eru að flýja frá stóru farartæki sem skýtur snjóboltum. Þeir sjá björn soldið í burtu lenda í sprungu. Þeir sjá þegar Tumi hendir af sér jólasveinabúningnum og hleypur. Þeir sjá þegar jólasveinninn snýr við og tekur upp jólasveinabúninginn og NMT-sími dettur úr honum. Þeir sjá líka þegar snjóboltinn lendir hjá jólasveininum og hann dettur niður sprungu.

,,Hvað er þetta?” spyr jólasveinninn í sjokki.
,,Við höfum farið til baka í fortíðina” svarar Bill.

Faratækið hendir niður pakka og Tumi byrjar að klifra á sylluna sem pakkinn er á.

,,Hleyptu mér í gegn!” öskrar jólasveinninn.
,,Það er óráðanlegt að breyta hinu liðna!” segir Bill.
,,Hleyptu mér í gegn!” öskrar jólasveinninn aftur.
,,okey!” segir Bill og ýtir á eitthvern takka á tölvunni sinni.

Jólasveinninn hoppar í gegn um glerið og kallar til Tuma

,,TUMI!!” öskrar jólasveinninn og hleypur til hans ,,Stoppaðu!”

Tumi heyrir í jólasveininum og bakkar á syllunni.
Jólasveinninn og Tumi sjást á ný.
,,Jólasveinninn. Herra” segir Tumi undrandi ,,Þú varst svei mér snöggur upp”
,,Ég fór aldrei niður” segir jólasveinninn.
,,Ha?” segir Tumi undrandi.

Tumi og jólasveinninn líta ofan í sprunguna og sjá jólasveininn þar barinn niður af gulum litlum mönnum.

,,Hverjir eru þetta?” spyr Tumi ,,og hvað ert þú að gera hér ef þú ert líka þarna niðri.”
,,Ég er ekki þarna niðri. Jú ég er líka þarna niðri en ég er líka hérna uppi. Nei ha? Ég er uppi og niðri eða bæði eða hvorugt” reynir jólasveinninn að útskýra ruglaður.

Jólasveinninn og Tumi ná í NMT-símann og pakkann sem er á syllunni.
Þeir nota kaðal úr belti jólasveinsins til að ná í pakkann. Svo opna þeir pakkann.

,,Hvað er þetta?” spyr Tumi.
,,Ég veit það ekki. En ég kannast við þetta” svarar jólasveinninn.

Hvað er í pakkanum?
Hverjir voru þessir litlu gulu kallar?
Hvernig virka hlutirnir ef jólasveinninn sannar að fortíðinni má breyta?

Fylgist með í næsta parti....


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 23:36:40 / girlypop

Jólasveininn Rekinn

Partur 7

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4, 5, 6

...,,Herra! Hjálp” kallar Tumi sorgmæddur til jólasveinsins.
,,Þú verður að þrauka. Mundu það góða inn í þér sonur sæll” kallar jólasveinninn til Tuma.

Jólasveinninn labbar inn ganginn og er samferða um hundrað öðrum föngum. Jólasveinninn var að verða brjálaður á öllu þessu veseni bara út af því að hann var ráðinn úr starfi. Hann reyndi að komast að því hver stæði á bak við þessa aðgerð og ákvað að spyrja síðhærða manninn fyrir framan sig.

,,Eh…herra” mumlaði jólasveinninn en maðurinn fyrir framan heyrði ekkert. Enda mikill hávaði.
Jólasveinninn endurtók setninguna en nú með meiri ákafa. Engin viðbrögð. Jólasveinninn byrjar að porta í manneskjuna og öskrar:

,,Hvernig væri að svara helvítis asninn þinn!!”

Maðurinn snýr sér við.

,,Jesú!” segir jólasveinninn hissa og hálf vandræðalega og sá greinilega hver þetta var.
,,Það er allt í lagi þó að þú blótaðir” segir Jesú ,,það blóta allir eitthvertímann. Ég hef blótað. Hérna fáðu þér brauð og vín.

Í sömu andrá pompast brauð og vínglas í höndina á jólasveininum.

,,Farðu varlega með glasið. Þetta er hágæða kristalssglað frá Tekk Kristal” segir Jesú og svo kallar hann yfir allan hópinn ,,Má ekki bjóða ykkur öllum brauð og vín gott fólk!”
,,Já!” öskra allir nema einn.

Lítill polli spyr Jesú hvort hann geti reddað djús. Já og áttu brauð frá samsölubakaríinu.

,,Því miður litli polli” segir Jesú ,,En ég á þetta. Sykurpúða!”

Litli strákurinn emgst um af gleði og étur þá alla í einu.
Þá er komið að því. Jesú ætlar að láta alla fá brauð og vín. Hann lætur það gerast. Brauð fer að rigna niður úr loftinu og brátt gefur gólfið sig.
Mörg hundruð manns hrapa niður einskonar svarthol eða göng og vínið kemur á eftir. Þetta er eins og risastór vatnsrennibraut.

,,Vííííí” öskrar Jesú á meðan jólasveinninn gubbar.

Brátt endar þessi stórskemmtilegi rússíbani.
Allir eru fastir í svörtu herbergi. Allir eru kyrrir og hræddir nema litli strákurinn sem át sykurpúðana. Hann er að panica og hleypur í hringi og syngur öll lögin í
dýrin í hálsaskógi aftur á bak.

,,Var svona nauðsynlegt að gefa honum sykurpúða!” spyr jólasveinninn Jesú.
,,Æji, herra Rögnvaldur Runólfson Rækja. Væri ekki bara upplagt að finna leið út” segir Jesú við jólasveininn og var nokkuð augljóslega búinn að gleyma nafninu á jólasveinunum.
,,Ha?” segir jólasveinninn ruglaður ,,Sko ég skal nú bara segja þér það að ég á að fara að gefa pakka eftir nokkra daga og ef við finnum ekki leiðina út, þá fær enginn af krökkum heimsins pakka frá jólasveininum.
,,Shit! Þú meina það” segir Jesú.
,,tsakab rukökrapip rageþ” heyrist upp úr krakkanum sem fékk sykurpúðana.
,,Við verðum að finna leið héðan út” segir Jesú.
,,Já. Við skulum prufa að leggja saman allt það góða í okkur og gá hvað ger...” jólasveinninn nær ekki að klára því maður nokkur grípur fram í fyrir honum.
,,Sælir, ég heiti Gates. Bill Gates og ég er forstjóri Microsoft” segir gaurinn.
,,Hey, alveg eins og nammið?” spyr Jesú klár með sig.
,,Nei, það er machintosh” segir jólasveinninn.
,,Argg...ekki segja þetta orð!” öskrar Bill.
,,Við verðum að vara snöggir að komast héðan úr. Tumi gæti verið í hættu”
segir jólasveinninn.

Bill Gates tekur upp ferðatölvu.

,,Nú þar sem maður fær nú 24 milljónir á tímann hverju breytir þó að maður eyðileggji eina ferðatölvu í skít” segir Bill.
,,Tuttugu og Fjórar!!” öskrar jólasveinninn ,,væri ekki þá bara fínt ef þú kaupir efnin í öll dótin sem ég þarf að búa til góurinn. Tuuutugu og fjórar...” mumlar jólasveinninn.

Bill byrjar að rita. Hann skrifar og skrifar klukkutímunum saman.
Loksins nær hann að hakka sig inn í gagnabanka blóðbanka ísland.

,,Hérna er það!” öskrar hann þegar hann kemst inn.
,,Hvað?” spyr jólasveinninn.
,,Héðan getum við gert hvað sem er. Ef ég ýti á enter þá gerist eitthvað” segir Bill.
,,Ýttu!” segir jólasveinninn spenntur.

Mun Bill ýta?
Munu þeir koma pökkum í skónna á réttum tíma?
Hvenær sjá þeir Tuma næst?

Fylgist með í næsta parti....


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:37:59 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 6

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4, 5

…,,Hvað?! Tum...”

Jólasveinninn gat ekki klárað setninguna því áður en hann gerði það fann hann fyrir höfuðhöggi og allt varð svart.

Tumi rankar við sér á bekk í klefa. í klefa við hliðina á Tuma liggur jólasveinninn. Klefarnir eru með rimla á milli hvors annars.
Tumi ætlar að reyna að vekja hann með því að henda steinum í hann. Tumi hendir þremur steinum en hittir ekki með neinum einasta. Hann leitar og leitar en engir smásteinar eru eftir í klefanum.
Þá kíkir hann undir rúmið sitt. Lengra en hann hafði áður kíkt. Hann þreifar og finnur eitthvað. Disk og glas. Á disknum er ekkert en glasið er troðfullt af köngulóm.

,,Jakk!” segir Tumi þegar hann sér glasið.

Hann ákveður að tæma glasið og henda til jólasveinsins í þeirri von um að vekja hann. Fyrst gáir hann nú út um rimlana til að vera öruggur um að enginn mundi heyra í glasinu.
Þegar hann kíkir út sér hann svolítið skemmtilegt. Lyklar hanga uppi á vegg við hliðina á klefahurðinni. Hann ákveður að taka þá og reynir að opna klefann. Ekkert virkar. Það finnst honum skrítið.
Hann hendir þá glasinu í klefann hjá jólasveininum. Glasið mölbrotnar og jólasveinninn vaknar.

,,Hver…hver…eh…hvar er ég?” stynur jólasveinninn.
,,Herra” hvíslar Tumi. ,,Við erum í gíslingu eitthverstaðar”
,,Ha? Og hvernig sleppum við í þetta skiptið?” segir jólasveinninn frekar pirraður á meðan hann strýkur kúluna á höfðinu.
,,Það er ekk…” Tumi klárar ekki setninguna því að vörður fyrir utan kallar.
,,Allir fangar á gangi 50 upp!” heyrist í verðinum.

Tumi og jólasveinninn standa upp og brátt opnast klefarnir þeirra.
Vörður kemur með handjárn og fótjárn og festir þá saman áður en þeir fá að fara út úr klefanum. Þegar þeir koma út trúa þeir ekki sínum eigin augum. Um 500 fangar eru í viðbót á þessum gangi og þetta er gangur 50.
Þeir fara allir í eitthverskonar risastóran matsal.
Sver maður stendur upp við ræðupúlt og byrjar að tala.

,,Jæja, gott fólk. Þá er komið að því sem þið hafið öll beðið eftir. Skiptingin! Lítið fólk fer þennan gang, vont fólk fer þennan gang, hlutlaust fólk fer þennan gang og góða fólkið fer þennan gang.

Brátt skipta allir sér. Jólasveinninn og Tumi reyna að vera saman en þeim er stíað í sundur af vörðum. Tuma er ýtt inn ganginn þar sem litla fólkið fer og jólasveinninn fer inn ganginn þar sem góða fólkið er.

,,Herra! Hjálp” kallar Tumi sorgmæddur til jólasveinsins.
,,Þú verður að þrauka. Mundu það góða inn í þér sonur sæll” kallar jólasveinninn til Tuma.

Munu jólasveinninn og Tumi sjást eitthverntíman aftur?
Hvar voru jólasveinninn og Tumi?
Hver stendur bak við þetta allt?

Fylgist með í næsta parti....


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:52:28 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 5

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4

…Það sem jólasveinninn á eftir að sjá er ekki fögur sjón…

Jólasveinninn sér að blóðlína verður þykkari og þykkari og brátt kemur hann auga á eitthvað. Það er eitthvað undir klakabroti. Jólasveinninn lyftir klakabrotinu.
Getur það verið?
Tumi er undir klakabrotinu og hreyfir sig ekki. Jólasveinninn sér allt blóðið og bíður hins versta.
Hann byrjar að pota í Tuma og reynir að vekja hann. Ekkert virkar. Jólasveinninn er að missa vonina. Hann er búinn að missa besta hreindýrið, besta aðstoðarálfinn og nú vonina.
Hann heldur áfram að pikka í Tuma. Brátt fyrir kraftaverk rankar Tumi við sér.

,,Ahhh...Herra! Þú ert á lífi!” kallar Tumi þegar hann er vaknaður.
,,Við verðum að koma þér á sjúkrahús” segir jólasveinninn.
,,Af hverju? Það er allt í lagi með mig. Já og meðan ég man þá fann ég dauðan björn ofan í sömu sprungunni og ég datt í. Ég tók hann bara með mér og borðaði” útskýrði Tumi á meðan hann rétti jólasveininum þykkan og mjög blóðugan bita.
,,Hvernig komumst við upp?” spyr jólasveinninn.
,,Það reddast. Rétt áður en við lögðum af stað lét ég NMT-símann í búninginn þinn.

Jólasveinninn byrjar að gramsa í öllum vösunum.

,,Hvar?” spyr hann svo.
,,Ekki ertu að segja mér að hann datt úr?” spyr Tumi skelkaður.
,,Hann er ekki hér” svarar jólasveinninn.
,,Shit! Við erum dauðir!” kjökrar Tumi.
,,Þetta reddast” segir jólasveinninn og reynir að hughreysta Tuma.

Tumi byrjar að labba um og leita að útgönguleið. Jólasveinninn labbar rétt á eftir.

,,Hvað var þetta annars sem var að skjóta á okkur snjóboltum” spyr Tumi.
,,Þetta var sendiflaug frá Meme. Þú hafðir getað séð það að það á stélinu. Það voru þrjú strik á því” útskýrir jólasveinninn.
,,Þrjú?! þau voru tvö sýndist mér” segir Tumi gáttaður.
,,Það getur ekki verið. Faratækin mín hafa tvö strik” segir jólasveinninn líka gáttaður
,,ó. Það hefur kannski bara líka verið ég sem ruglaðist” segir Tumi á meðan hann gengur fram hjá horni.

Þegar jólasveinninn labbar fram hjá sama horni og Tumi gekk inn um sér hann Tuma liggjandi á klakanum.

,,Hvað?! Tum...”

Jólasveinninn gat ekki klárað setninguna því áður en hann gerði það fann hann fyrir höfuðhöggi og allt varð svart.

Hvað var það sem rotaði jólasveininn og Tuma?
Af hverju eru þrjú strik á farartækjum Memear en farartækið sem skaut snjóboltunum var aðeins með tvö? Eins og farartæki jólasveinsins.
Hvernig bjargast jólasveinninn og Tumi?

Fylgist með í næsta parti....


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 14:36:59 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 4

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3

…,,AAAA!” heyrist í jólasveininum á meðan hann hrapar niður.

Um leið og jólasveinninn hrapar ofan í sprunguna hætta snjóboltarnir að skjótast og farartækið flýgur í burtu. En áður en það flýgur í burtu lætur það pakka hrapa niður í fallhlíf.
Tumi veit ekki hvað hann á að gera. Hlaupa og taka upp pakkann eða bjarga jólasveininum.
Hann fær góða hugmynd. Hann ákveður að ná í pakkann og svo bjarga jólasveininum.

Pakkinn liggur á íssyllu fyrir ofan eina sprunguna. Tumi teygir sig eftir pakkanum.

,,Aðeins lengra” mumlar Tumi. Hann er ekki að ná pakkanum.

Brök og brestir heyrast í ísnum á meðan Tumi teygir sig lengra og lengra. Hann er komin út á miðja blaðþunna sylluna.
Allt í einu gefur syllan sig og Tumi og pakkinn hrapar niður. Tumi þrusast í klett og loks hættir hann að hrapa. Hann liggur hreyfingarlaus.

Á sama tíma er jólasveinninn að ranka við sér á kannski öðrum stað í annarri sprungu. Langt frá Tuma. Hann skimar um sig en sér ekkert. Það er niðamyrkur.
Í jólasveinabúningnum geymir hann yfirleitt vasaljósið sitt.
Hann þreifar í kringum sig og snertir loks búninginn. Nær í vasaljósið og kveikir.
Nú sér hann í kringum sig vel. Þetta var opin og góð sprunga.

Hann byrjar að labba um. Þetta er eins og völundarhús.

Brátt kemur hann auga á blóð. Blóðlínu sem kom úr öðrum göngum og stefnir áfram.
Jólasveinninn ákveður að gá hvað þetta sé og fylgir línunni.

Það sem jólasveinninn á eftir að sjá er ekki fögur sjón…

Munu jólasveinninn og Tumi hittast aftur?
Er Tumi dáinn?
Hvað var svona ófögur sjón?

Fylgist með í næsta parti...


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 19:06:27 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 3

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2

...Rúdólf með rauða trýnið dó.

,,Ég samhryggist innilega, herra” kemur Tumi upp úr sér í gegn um tárin.
,,Hann var gott hreindýr og góður vinur” segir jólasveinninn.

Brátt sést eitthvað stórt og kraftmikið fljúga yfir pólnum.

,,Hvað er þetta?” spyr Tumi undrandi.
,,Fjandinn! Hlauptu!” öskrar jólasveinninn.
,,Af hverju?” spyr Tumi.
,,Hlauptu!!” kallar jólasveinninn og togar í Tuma.

Fyrir aftan þá sjást risastórir snjóboltar skjótast úr stóra fljúgandi faratækinu.
Þessir boltar eru svo stórir að klakinn brotnar og skilur eftir risastórar og hyldjúpar sprungur.
Snjóboltarnir skjótast svo hratt að þeir nálgast jólasveininn og Tuma óðfluga.
Á sama augnarbliki og jólasveinninn lítur til baka sér hann hvernig einn snjóboltinn lendir á sleðanum og mölbrýtur.

,,Hraðar. Hlauptu hraðar!” öskrar jólasveinninn til Tuma.
,,Ég get ekki” kallar Tumi á móti.
,,Hraðar!” öskrar jólasveinninn aftur ,,þeir eru að ná okkur!”

Tumi ákveður að klæða sig úr jólasveinabúningnum á ferð til að hlaupa hraðar.
Hann hendir honum niður og heldur áfram.

,,Neiiii!” öskrar jólasveinninn og snýr við.
,,Herra! Hvað ertu að gera?” kallar Tumi.

Jólasveinninn tekur upp jólasveinabúninginn og byrjar aftur að hlaupa. Hann tók ekki eftir því að svartur kassalaga hlutur datt úr búningnum um leið og hann tók hann upp.
Hann lítur á Tuma. Hann stendur stjarfur og horfir upp.
Hann sér ekki það sem Tumi sér.
Risastór snjóbolti stefnir beint ofan á jólasveininn.

,,Herra!” öskrar Tumi.

Risastóri snjóboltinn hrapar rétt við hliðina á jólasveininum og risastór sprunga myndast. Jólasveinninn hrapar ofan í hana.

,,AAAA!” heyrist í jólasveininum á meðan hann hrapar niður.

Mun jólasveinninn bjargast?
Hver mun bjarga honum?
Hvað var svona merkilegt í jólasveinabúningnum?
Hvað var þetta svarta sem datt úr jólasveinabúningnum?

Fylgist með í næsta parti...


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 18:59:47 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 2

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1

...Jólasveinninn spyr hvað sé hægt að gera. Tumi segist hafa hugmynd.

,,Við getum farið í dulargervi og platað Meme” segir Tumi stoltur með sína hugmynd.
,,Já, ég skal vera jólasveinn og þú álfur. Virkar það” segir jólasveinninn og reynir að gera lítið úr Tuma.
,,þú hefur ekki skárri hugmynd, herra” svarar Tumi fyrir sig.
,,júbb. Ég verð álfur og þú verður Jólasveinn” svarar jólasveinninn.

Þeir fara í gervin sín og hyggjast finna höll Memear.

,,Júlíus, þú ekur” kallar jólasveinninn.
,,Ég heiti Tumi, herra” svar Tumi.
,,Ert þú að segja mér að þú hafir aldrei séð Stellu í orlofi?” spyr jólasveinninn.

Nú leggja þér af stað.

Tumi er við stýrið því hann er núna jólasveinninn.

Hátalarakerfi: ,,Við erum í fjögur þúsund feta hæð og loftið er rakt. Hitinn utandyra er –20° og búist er við strekkingu sunnanlands”
,,Nauj! Ertu með hátalarakerfi í sleðanum?!” spyr Tumi undrandi.
,,Já, auðvitað. Þú getur líka pantað franskar og kók í gegn um það” svarar jólasveinninn.

Mikill sviftivindur feykir sleðanum á hlið og hann hrapar niður ásamt öllum hreindýrunum.
Jólasveinninn og Tumi halda lífsmarki.

,,Rúúúdóóólf!” öskrar jólasveinninn meðan hann hleypur til hreindýrsins.
,,Farðu hú-húsbóndi, ég...ehh...ég kemst ekki með þér lengra” kemur Rúdólf upp úr sér.
Tár lekur niður kinnina á jólasveininum.
,,Þú hefur verið góður húsbóndi, góður maður, góður faðir” segir Rúdólf með tárin í augunum.
,,Ekki fara” segir jólasveinninn með kökkinn í hálsinum.
Tumi er hágrátandi líka.
Öll jörðin er hulin hreindýrum sem hafa dáið.
Brátt sjá þeir augun á Rúdólf lokast í síðasta skipti.
Rúdólf með rauða trýnið dó.

Hvað gerist nú?
Tumi og Jólasveinninn eru fastir á norðurpólnum.
Hreindýrin dáin og jólasveinninn sorgmæddur vegna dauða Rúdólfs.
Hvað gerist næst?

Fylgist með í næsta parti...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7