Total Cosmo
15.12.2006 19:06:27 / girlypop

Jólasveinninn Rekinn

Partur 3

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2

...Rúdólf með rauða trýnið dó.

,,Ég samhryggist innilega, herra” kemur Tumi upp úr sér í gegn um tárin.
,,Hann var gott hreindýr og góður vinur” segir jólasveinninn.

Brátt sést eitthvað stórt og kraftmikið fljúga yfir pólnum.

,,Hvað er þetta?” spyr Tumi undrandi.
,,Fjandinn! Hlauptu!” öskrar jólasveinninn.
,,Af hverju?” spyr Tumi.
,,Hlauptu!!” kallar jólasveinninn og togar í Tuma.

Fyrir aftan þá sjást risastórir snjóboltar skjótast úr stóra fljúgandi faratækinu.
Þessir boltar eru svo stórir að klakinn brotnar og skilur eftir risastórar og hyldjúpar sprungur.
Snjóboltarnir skjótast svo hratt að þeir nálgast jólasveininn og Tuma óðfluga.
Á sama augnarbliki og jólasveinninn lítur til baka sér hann hvernig einn snjóboltinn lendir á sleðanum og mölbrýtur.

,,Hraðar. Hlauptu hraðar!” öskrar jólasveinninn til Tuma.
,,Ég get ekki” kallar Tumi á móti.
,,Hraðar!” öskrar jólasveinninn aftur ,,þeir eru að ná okkur!”

Tumi ákveður að klæða sig úr jólasveinabúningnum á ferð til að hlaupa hraðar.
Hann hendir honum niður og heldur áfram.

,,Neiiii!” öskrar jólasveinninn og snýr við.
,,Herra! Hvað ertu að gera?” kallar Tumi.

Jólasveinninn tekur upp jólasveinabúninginn og byrjar aftur að hlaupa. Hann tók ekki eftir því að svartur kassalaga hlutur datt úr búningnum um leið og hann tók hann upp.
Hann lítur á Tuma. Hann stendur stjarfur og horfir upp.
Hann sér ekki það sem Tumi sér.
Risastór snjóbolti stefnir beint ofan á jólasveininn.

,,Herra!” öskrar Tumi.

Risastóri snjóboltinn hrapar rétt við hliðina á jólasveininum og risastór sprunga myndast. Jólasveinninn hrapar ofan í hana.

,,AAAA!” heyrist í jólasveininum á meðan hann hrapar niður.

Mun jólasveinninn bjargast?
Hver mun bjarga honum?
Hvað var svona merkilegt í jólasveinabúningnum?
Hvað var þetta svarta sem datt úr jólasveinabúningnum?

Fylgist með í næsta parti...

Óðinn skrifaði
phon-omenal!
GretA skrifaði
ArnAr er í laGi ef ég hringi í þiG og fæ að vita hvað þeTTa svarTa eR... ég held að éG geti ekki beðiÐ þangaÐ til á morgun... má ég það...? má éG?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.